Eftirfarandi ályktun var gerð föstudaginn 18. desember s.l.

"Bæjarstjórn Grundarfjarðar  lýsir þungum áhyggjum af boðuðum niðurskurði  hjá  Sýslumanni Snæfellinga.   Bæjarstjórnin  ítrekar fyrri ályktanir og mótmælir því að niðurskurður á þjónustu hins opinbera skuli fyrst og fremst verða á landsbyggðinni.  

Bæjarstjórn Grundarfjarðar mótmælir harðlega ákvörðun um lokun umboðsskrifstofu sýslumannsembættisins í Grundarfirði  frá áramótum  og telur að ákvörðunin sé ekki byggð á faglegum forsendum heldur sé um tilviljanakennda ákvörðun að ræða. Dagleg opnun umboðsskrifstofunnar í Grundarfirði hefur mælst mjög vel fyrir og verið vel nýtt af íbúum í fjölbreyttum erindagjörðum. Lokun skrifstofunnar ýtir sparnaði embættisins yfir á almenna íbúa í Grundarfirði og eykur kostnað þeirra. Bæjarstjórnin skorar á sýslumann að endurskoða þessa ákvörðun með hliðsjón af þörfum og  þjónustu við íbúa.

Boðuð fækkun í löggæsluliði yfir vetrartímann um 25% á þessu víðfeðma landsvæða minnkar öryggi íbúa svæðisins og lengir viðbragðstíma lögreglunnar verulega. Bæjarstjórnin telur að nú þegar sé allt of langt gengið  í niðurskurði á löggæslu á svæðinu.  

Bæjarstjórn Grundarfjarðar skorar á dómsmálaráðherra  og fjárveitingavaldið að endurskoða fjárveitingar til embættis Sýslumanns Snæfellinga."