66. fundur bæjarstjórnar Grundarfjarðar verður haldinn fimmtud. 9. mars kl. 17.00 í samkomuhúsinu. Á dagskrá eru meðal annars fundargerðir nefnda og ráða, rekstraryfirlit jan-feb, tillaga í húsnæðismálum smíðakennslu grunnskóla, hverfisvæn leið um Grundargötu, tillaga félagsmálanefndar Snæfellinga um breytingar á reglum, breyting á samþykkt um fráveitu í Grundarfirði, breyting á gjaldskrá um gatnagerðargjöld, tvær tillögur um heimild til bæjarstjóra vegna sölu/kaupa á fasteignum og ýmis gögn til kynningar. Fundurinn er öllum opinn.

 

Bæjarstjóri