- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Benjamín Æsir Markússon, nemandi í 8. bekk í Grunnskóla Grundarfjarðar, sigraði Rímnaflæði . Benjamín keppti fyrir félagsmiðstöðina Eden og flutti lagið Ég vs. ég.
Rímnaflæði fór fram föstudaginn 20. nóvember. Um er að ræða rappkeppni ungs fólks þar sem þátttakendur koma frá f´élagsmiðstöðvum víðs vegar um landið og flytja texta sem þeir hafa samið sjálfir. Keppnin á sér langa sögu og var fyrst haldin í Miðbergi árið 1999. Ýmsir þekktir rapparar hafa tekið þátt í Rímnaflæði á yngri árum, þar á meðal Emmsjé Gauti.
Samnemendur Benjamíns komu saman í félagsmiðstöðinni Eden á föstudagskvöldið og fylgdust með Rímnaflæði saman. Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstundarfulltrúi Grundarfjarðarbæjar, var þar með hópnum.
Við erum gríðarlega stolt af honum Benjamín okkar. Allir fengu gæsahúð þegar hann flutti lagið og voru sammála um að Benjamín myndi sigra. Það má segja að salurinn hafi tryllst þegar tilkynnt var að Eden hefði unnið Rímnaflæði", segir Hinik.
Grundarfjarðarbær óskar Benjamín Æsi innilega til hamingju með glæsilegan árangur.
Hægt er að sjá atriðið hans Benjamíns hér, það hefst á 22:25: https://www.youtube.com/watch?v=7KQ0ua2R7FA