Björgunarsveitin Klakkur notaði tækifærið og gaf nýjum björgunarbát nafnið Reynir síðastliðið laugardagskvöld þegar Reynir S. Gústafsson hélt uppá 70 ára afmæli sitt, en hann varð sjötugur 1. des.

Báturinn var dreginn á veislustað og Reynir fengin til að afhjúpa nafnið.

Reynir er einn af stofnendum Björgunarsveitarinnar Klakks og gengdi formennsku hennar til margra ára.

Þvi er vel við hæfi að nefna bátinn eftir honum.