Nú er sýningum á söngleiknum Blúndubrók og brilljantín - "Those were the days" lokið og voru viðtökurnar vægast sagt frábærar. Uppselt var á allar sýningar og voru margir sem höfðu á orði að gaman væri að hafa eins og eina aukasýningu.

Nú hefur verið sett upp ein aukasýning á miðvikudagsvköldið kl. 20 og sýnt er eins og áður í Samkomuhúsi Grundarfjarðar.

Nú er um að gera og panta miða á þessa aukasýningu, bæði þeir sem séð hafa verkið og vilja fara aftur sem og þeir sem hafa einhverra ástæðna vegna ekki séð sýninguna.

 

Miðasala fer fram í síma 430-8550 frá kl: 08 til 16 og eftir það í síma 863-1670.