Bækur barnanna 2013

Kosning á bókum sem komu út árið 2013 er í fullum gangi.
Lesendur á aldrinum 6-12 ára geta valið bestu barnabækur sem komu út árið 2013. Hver lesandi má velja allt að 3 bækur. Tvær bækur verða verðlaunaðar, önnur frumsamin og hin þýdd.

Hægt er að velja bækurnar fram til 5. september.

Í Grundarfirði þarf að skila seðlum til bókasafnsins eða skólabókasafnsins til að eiga möguleika á glaðningi en dregið verður úr innsendum seðlum.

 

Munið bókasafnadaginn 8. september. Kíkið á auglýsingar í flestum fjölmiðlum þegar nær dregur.