Börn ársins 2019 // Dzieci urodzone w roku 2019

 Á gamlársdag var börnum ársins 2019 fagnað.

 

Allt frá árinu 2006 hafa nýfædd börn í Grundarfirði verið boðin velkomin í heiminn með gjöfum frá sveitungum sínum. Það er Grundarfjarðarbær í samstarfi við Leikskólann Sólvelli, Heilbrigðisstofnun Vesturlands Grundarfirði og Slysavarnadeildina Snæbjörgu sem að þessu standa. Hverju barni eru færð að gjöf hagnýtur fatnaður, tannbursti, bækur og bæklingur frá leikskólanum, auk þess sem með fylgja endurskinsmerki og leiðbeiningar til foreldra, t.d. gátlisti um öryggi barna á heimili.

Gjöfin hefur verið kölluð “sængurgjöf samfélagsins” og er hluti af fjölskyldustefnu Grundfirðinga, sem sett var 2006. Hugmyndin átti þá rætur sínar að rekja til Finnlands, þar sem tíðkast hafði að gefa börnum hagnýtar gjafir í kassa sem mátti síðan breyta í vöggu.

“Í okkar litla samfélagi skiptir hver einstaklingur miklu máli. Þetta er sú leið sem okkar samfélag fer til að bjóða nýjustu íbúana sérstaklega velkomna. Það þarf nefnilega heilt þorp til að ala upp barn. Þannig er þetta líka hugsað til að minna okkur öll á gildi þess að hlúa hvert að öðru, ekki síst börnunum, til að rækta gott samfélag”, segir bæjarstjóri.

Haldið var samsæti í Sögumiðstöðinni fyrir börn ársins og fjölskyldur þeirra, en í árslok búa hér 16 börn fædd á árinu, 7 drengir og 9 stúlkur.