Um áramótin kvaddi okkur Guðjón Valgeirsson tannlæknir, sem hefur þjónað hér í 20 ár. Hann mun hafa áfram stofu í Mosfellsbæ og geta viðskiptavinir hans sótt þjónustu þar á ferðum sínum til Reykjavíkur.

Stjórn heilsugæslunnar þakkar Guðjóni fyrir frábært samstarf í gegn um árin og óskar honum og fjölskyldu hans velfarnaðar. Við tannlæknaþjónustu í Grundarfirði tekur Ari Bjarnason tannlæknir í Ólafsvík sem mun koma hér einn dag í viku, til að byrja með dagana 21. – 23. febrúar. Hann mun verða með síma 4361010.

Heilsugæsla Grundarfjarðar