Tryggvi Hafsteinsson hefur tekið sér frá frá þjálfun fram til páska. Til að leysa þjálfaramálin þangað til höfum við fengið Berglind Ósk Kristmundsdóttir til að sjá um  2.fl kv og Arnar Guðlaugsson tekur við þjálfun 5. og 3. fl ka. Einnig mun Heimir Þór Ásgeirsson koma inn sem afleysingarþjálfari ef þarf. Tryggvi tekur aftur við þessum flokkum strax eftir páska. Æfingatímarnir haldast óbreyttir nema hjá 2. fl kv þar mun þriðjudagstíminn færast aftur til kl 18:30.

Við viljum einnig minna á að knattspyrnustarfið á Snæfellsnesi er að fara á fullt og hvetjum við alla til að fylgjast með heimasíðunni www.snaefell.is þar munu allar upplýsingar verða settar inn.