Með þessu bréfi viljum við undirrituð biðla til afkomenda Elísar Gíslasonar og Vilborgar Jónsdóttur frá Vatnabúðum, sem og allra velunnara þess að byggt verði skýli yfir bátinn Brönu sem hefur verið varðveittur í Sögumiðstöðinni Grundarfirði um nokkurra ára skeið.

 

Hugmynd hefur komið fram um að skýli verði reist fyrir bátinn í króknum við Sögumiðstöðina með gluggum í austurátt svo sjá megi bátinn einnig utanfrá , en til slíkra framkvæmda skortir fjármagn.

 

Við undirrituð höfum því stofnað söfnunarreikning í Arion banka í von um góðar undirtektir og hver eftir sinni getu leggi fram framlag til þessa þarfa málefnis ekki síst þeir sem hafa haft sína afkomu af sjónum á litlu eða stóru fleyi. Það eru áform okkar að afhenda þá fjárupphæð sem safnast á næsta ári því árið 2013 verða 100 ár liðin frá því að Brana var smíðuð.

 

Með bestu kveðjum.

Pálína Gísladóttir, Arnór Kristjánsson,

Jónína Kristjánsdóttir, Gunnar Hjálmarsson og Guðjón Elísson.

 

Söfnunarreikningur í Arionbanka er:

0321-13-905220 kt:091035-3329