- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Nikos Mertzanidis framkvæmdarstjóri CLIA (Cruise Line International Association) og Hans Chen Braas CLIA - svæðisstjóri Norðulanda og Eystrasaltsríkja heimsóttu Grundarfjörð í síðustu viku ásamt Sigurði Jökli Ólafssyni framkvæmdarstjóra Cruise Iceland. Hópurinn var á ferð um landið í þeim tilgangi að hitta sveitarstjórnarfólk, hafnir og aðra hagaðila til ræða framtíð skemmtiferðaskipa á Íslandi.
Sigurður Jökull hefur verið tíður gestur í Grundarfirði og hafa Nikos og Hans einnig komið áður, síðast fyrir rúmu ári síðan og höfðu þeir orð á því hvað það væri gaman að sjá alla þá uppbyggingu sem hefur átt sér stað á höfninni undanfarin ár. Má þar nefna að í júlí var lokið við að bæta við nýrri flotbryggju og stækka móttökusvæði fyrir gesti. Þessi framkvæmd gerir það að verkum að Grundarfjarðarhöfn getur tekið á móti tveimur skemmtiferðaskipum á ankeri á sama tíma.
Eins og áður segir var hljóðið í hópnum gott hvað varðar Grundarfjörð og Grundarfjarðarhöfn en áhyggjuraddir heyrast hinsvegar varðandi Ísland í heild sem áfangastað. Síðustu ár hafa einkennst af mikilli óvissu í sambandi við innviðagjald og nýjar reglur um að leiðangursskip sem sigla innan íslenskrar lögsögu séu virðisaukaskattskyld. Umhverfi skemmtiferðaskipa á Íslandi hefur einkennst af ófyrirsjáanleika sem hefur orðið til þess að skipakomum hefur almennt fækkað milli ára og hefur það haft sérstaklega mikil áhrif í smærri byggðarlögum. Skv. upplýsingum frá Cruise Iceland námu efnahagsleg áhrif skemmtiferða- og leiðangursskipa á Íslandi meira en 40 milljörðum króna árið 2023.
Heimsóknin var góð og var m.a. rætt um hvort það sé grundvöllur fyrir því að skemmtiferðaskip geti komið fyrr á vorin og siglt lengra inn í veturinn og þannig lengt skemmtiferðaskipatímabilið. 28. október í fyrra kom Vasco da Gama til hafnar og hefur skemmtiferðaskip aldrei komið eins seint á árinu til Grundarfjarðar. Það er því ljóst að tækifæri eru til staðar. Virkt samtal og samvinna sveitarfélaga, hafna, skemmtiferðaskipaútgerða, ferðaþjónustu og hagsmunaaðila er lykillinn að áframhaldandi velgengni.