Stuð á sjómannadegi
Stuð á sjómannadegi

Fimmtudagur 31. maí

Skotmót á svæði  Skotfélags skotgrundar. Keppni milli sjómanna og landmanna. Skráning hjá Jóni Pétri í síma 863-1718. Allar nánari upplýsingar og tímasetningar á heimasíðu félagsins: skotgrund.123.is

 

Föstudagur 1. Júní

Kl. 9:30. Fara sjómenn með fiska uppá leikskóla, bjóða uppá harðfisk og fara í reipitog.

Kl. 17:30. Golfmót í boði G.Run. Spilað verður fjögra manna texsas. Skráning á golf.is eða hjá Önnu Maríu í Sími 8696076.                                                                                                         

 Laugardagur 2. júní

 

Kl. 11:00. Krakkasprell í Vélsmiðju Grundarfjarðar. Eitthvað gott í boði fyrir þau sem mæta.

Kl. 12:30. Hringur SH fer í skemmtisiglingu og vonandi Helgi Sh ef hann verður orðinn klár, um fjörðinn.

Kl. 13:00. Kemur þyrla landhelgis gæslunar og heldur æfingu. Best verður að sjá frá enda stórubryggju. (norðurgarður)

Kl. 13:30. Grillaðar pulsur á bryggjunni  í boði Samkaupa og Svali í boði Láka Hafnarkaffi. Að grilli loknu hefst keppni á bryggjunni í nokkrum skemmtilegum greinum. Það þarf 4 í hvert lið og eru fyrirtæki hvött til að senda lið. Það ÞARF EKKI að vera vanur sjómaður til að keppa, þannig að endilega safnið saman í lið og gerum þetta sem skemmtilegast. Einnig verður keppt í reiptogi um Pétursbikarinn.

Stuttu eftir að dagskrá lýkur verður knattspyrnuleikur á Grundarfjarðarvelli  milli sjómanna og sjómannskvenna. Þetta verður spennandi

Vertinn á Bistró lofar góðu sjómannapartý. Sjá nánar á Facebook

 

Sunnudagur 3. júní

 

Kl. 14:00. Messa í Grundarfjarðarkirkju. Sr Aðalsteinn Þorvaldsson messar.

Karlakórinn Kári syngur.

Kl. 15:00. Kaffisala Kvenfélagsins Gleym mér ei í samkomuhúsi Grundarfjarðar.

Hlökkum til að sjá bæjarbúa koma og taka þátt með okkur!!!

Minnum á sölu sjómannadagsmerkjanna um allan bæ