Leikskólinn Sólvellir í 30 ár á Sólvöllum 1, 16. nóvember er dagur íslenskrar tungu og af því tilefni verða nemendur með skemmtun í leikskólanum klukkan 10:00. Einnig ætlum við að halda hátíðlegt að þann 15. nóvember eru liðin 30 ár frá því að leikskólinn flutti í húsnæðið að Sólvöllum 1 og verður afmælið í framhaldi af skemmtuninni.

Foreldrar og aðrir gestir eru sérstaklega boðnir velkomnir.

Allir í leikskólanum.