Fjársjóðskort sem að börnin á Eldhömrum bjuggu til í tengslum við sjóræningjahátíð sem var á degi le…
Fjársjóðskort sem að börnin á Eldhömrum bjuggu til í tengslum við sjóræningjahátíð sem var á degi leikskólans

Dagur leikskólans

Í dag, sjötta febrúar, er dagur leikskólans. Á þeim degi stofnðu frumkvöðlar leikskólakennara með sér sín fyrstu samtök. Markmið með Degi leikskólans er að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og um leið beina athygli samfélagsins að því faglega og metnaðarfulla starfi sem fer fram í leikskólum landsins á hverjum degi.

Sólvellir 

Markmiðið með degi leikskólans er að auka jákvæða umræðu um leikskólastarf og einblína á það faglega og metnaðarfulla starf sem unnið er í leikskólum landsins. Að sjálfsögðu var dagurinn því haldinn hátíðlegur í Leikskólanum Sólvöllum. Undirbúningur hófst í byrjun þessarar viku þar sem börnin fengu að segja hvað þau vildu gera. Börnin völdu að baka köku sem yrði svo borðuð í eftirrétt í hádeginu. Þau fengu að baka hana í gær, fimmtudag, með aðstoð kennaranna sinna og skreyttu kökuna svo í dag með bláu og grænu kremi. Einnig var opið hús fyrir foreldra milli 8 til 9 þar sem þau gátu komið í heimsókn og notið þess að borða morgunmat með börnunum sínum.

  

 

 

Leikskóladeildin Eldhamrar

Á degi leikskólans buðu börnin á Eldhömrum fjölskyldum sínum, kennurum og bæjarstjóra að koma á sjóræningjahátíð sem einnig er lokadagur sjóræningjaþema sem hefur verið í gangi síðustu vikur. Í sjóræningjaþemanu er unnið að fjölbreyttum verkefnum eins og allskyns föndri, leikjum, sögugerð, unnið með styrkleika einstaklingsins og fleira. Á hátíðinni var afrakstur síðustu vikna til sýnis, veitingar í boði og skynjunarleikir sem börn og gestir höfðu gaman af. 

Börnin á Eldhömrum mættu á bæjarskrifstofuna þann 5. febrúar og buðu bæjarstjóra með formlegu boðskorti á sjóræningjahátíð. 

 

 

Björg bæjarstjóri heimsótti Eldhamra á degi leikskólans og tók þátt í sjóræningjahátíð með börnunum.