Menntamálaráðuneytið, Félag leikskólakennara, Samband íslenskra sveitarfélaga og Heimili og skóli hafa sameinast um að tileinka leikskólanum ákveðinn dag ár hvert og  var 6. febrúar valinn þar sem frumkvöðlar leikskólakennara stofnuðu fyrstu samtök sín þann dag árið 1950.

Markmið Dags leikskólans er:

•  Að gera þegna þjóðfélagsins betur meðvitaða um þýðingu leikskóla

   fyrir börn.

•  Að skapa jákvæða ímynd um leikskólakennslu og auka áhuga fólks á

   starfinu.

•  Að beina athygli þjóðarinnar að stöðu leikskólans, gildi hans

   fyrir menningu og þjóðarauð.

 

Nú er 6. febrúar á sunnudegi þannig að ekki er hægt að halda upp á hann á

leikskóladegi.   En það er  ýmislegt framundan  hér í Leikskólanum

Sólvöllum.  Þorrablótið verður haldið miðvikudaginn 9. febrúar og hefst með skemmtiatriðum nemenda f. 2005-2008  kl. 11:00 í Samkomuhúsinu og síðan verður boðið upp á Þorramat í leikskólanum.  Foreldrar og aðrir áhugasamir eru velkomnir, gestir á Þorrablótinu eru nemendur 1. bekkjar

grunnskólans.    Í tilefni konudagsins er konum sérstaklega boðið í

heimsókn í leikskólann föstudaginn 18. febrúar.   Þá eru viðburðir tengdir

Bollu-, Sprengi- og Öskudegi í byrjun mars.

 

Við bjóðum góðan dag, alla daga

LEIKSKÓLINN  SÓLVELLIR