Dagur reykskynjarans

1.desember hvert ár er dagur reykskynjarans. Þá er gott að skipta um rafhlöðu í skynjaranum og prófa, eða í tilfelli skynjara með innbyggða rafhlöðu að prófa. Það er mikilvægt að hafa reykskynjara í öllum svefnherbergjum vegna þess að það eru komin t.d. hleðslutæki í herbergin og hjá börnum og unglingum eru gjarnan tölvur, leikjatölvur, skjáir og sjónvörp ásamt ýmsu fleiru. Það er margsannað að reykskynjari er ódýrasta líftrygging sem hægt er að kaupa – því er mikilvægt að passa upp á skynjarann og setja nýja rafhlöðu í hann einu sinni á ári. Eins er gott að eiga rafhlöðu á vísum stað ef skynjarinn fer að kvarta undan rafhlöðunni. Ert þú með reykskynjara?

Hægt er að kaupa reykskynjara hjá starfsmannafélagi slökkviliðs Grundarfjarðar með því að hafa samband við Tómas Frey eða Gumma Reynis.