Dagur reykskynjarans 

Nú er aðventan genginn garð og af því tilefni langar okkur að þið spyrjið ykkur nokkurra spurninga:

1. Er skipt árlega um rafhlöður í reykskynjurum? Ertu búin að því fyrir þetta ár?

2. Eru reykskynjar heimilisins orðnir of gamlir? (líftími reykskynjara er 10 ár)

3. Er til slökkvitæki á heimilinu og er það yfirfarið reglulega? (Dufttæki þarf að yfirfara árlega)

4. Er til eldvarnarteppi á heimilinu? Er það í lagi? (Árlega er gott að taka teppið úr umbúðunum, breiða úr því og setja það svo aftur í hulstrið)

5. Eru allir á heimilinu með rétt viðbrögð á hreinu? (neyðarnúmerið 112, útgönguleiðir, allir viti hvar slökkvitækið er og kunni að nota það).

6. Eru eldfæri tryggilega varðveitt og brýnt fyrir börnum að fikta ekki með eld?

7. Eru rafmagnsleiðslur, rafmagnstæki og rafmagnstöflur hússins í topplagi?

8. Eru hleðslusnúrur í lagi og ekki aldraðar eða slitnar?

9. Eru snjalltæki og tölvur ekki örugglega hlaðin við réttar aðstæður (á hörðu undirlagi)?

Nú er tími jólaskrauts að bresta á. Passið að ofhlaða ekki fjöltengi og gera ekki jólaljósin of gömul, rafmagnssnúrur verða stökkar með aldrinum og þá getur leitt saman og kviknað í.

Hægt er að kaupa reykskynjara hjá starfsmannafélagi slökkviliðs Grundarfjarðar með því að hafa samband við Tómas Frey eða Gumma Reynis.

 

Með ósk um gleðilega og eldlausa aðventu!

 

Slökkvilið Grundarfjarðar