Dagur tónlistarskólanna 

Dagur tónlistarskólanna er 7. febrúar. Markmiðið með Degi tónlistarskólanna er að vekja athygli á fjölbreyttri og öflugri starfsemi tónlistarskólanna í landinu og eins að styrkja tengsl við nærsamfélagið. Í tilefni dagsins fara nokkrir nemendur í sögumiðstöðina að syngja.

Dagurinn er tileinkaður minningu dr. Gylfa Þ. Gíslasonar (7.febrúar 1917-18.ágúst 2004) fyrrverandi menntamálaráðherra. Í embættistíð hans beitti hann sér fyrir margvíslegum umbótum í skóla og menningarmálum sem við búum enn að. M.a. gaf hann út reglugerð árið 1959 um stofnun söngkennaradeildar (síðar nefnd tónmenntakennaradeild) og síðar bættust við hljóðfærakennaradeildir. Hann beitti sér jafnframt fyrir undirbúningi að stofnun tónlistarskóla á landsbyggðinni, en þeir örfáu sem þar voru um 1960 voru einkareknir og sumstaðar við bág skilyrði og öryggisleysi þar sem skólahald gat fallið niður ef illa áraði.Vegna framgöngu hans náðu fyrstu lögin um fjárhaglegan stuðning við tónlistarskóla fram á 7. áratug síðustu alda.

Úr tónlistarskólanum okkar er það annars að frétta að við höfum staðið í stórræðum síðan í byrjun síðasta sumars og hefur skólinn tekið miklum breytingum til hins betra og hefur vinnuumhverfi batnað til muna, m.a. hljóðvist og aðgengi. 15. janúar sl. fagnaði skólinn 50 ára afmæli og er í undirbúningi afmælishátíð, en hún verður auglýst nánar þegar dagsetning liggur fyrir.

Í byrjun desember héldum við glæsilega jólatónleika fyrir fulla kirkju, og um miðjan desember fóru nemendur og spiluðu og sungu fyrir íbúa Fellaskjóls. Nemendur Eldhamra og leikskólans komu í heimsókn til okkar og hlýddu á stutta tónleika og haldnar voru litlar vinnusmiðjur fyrir nemendur.

Tónlistarskólinn er fyrir alla og hvetjum við fólk sem hefur átt þann draum að læra á hljóðfæri að láta hann rætast. Það er aldrei of seint að læra 😊

Til hamingju með daginn!

Nokkrar myndir frá jólatónleikum tónlistarskólans í desember 2024