- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Dagur vatnsins var haldinn hátíðlegur í Samkomuhúsi Grundarfjarðar sunnudaginn 22. mars síðastliðinn. Dagur vatnsins er alþjóðlegur hátíðisdagur Sameinuðu þjóðanna og er ætlað að undirstrika mikilvægi ferskvatns.
Vatn er lífsnauðsynlegt - sama í hvaða formi það birtist. Það er ís, snjór, rennandi vatn, sjór og votlandi, en einnig gufa og raki í loftinu. Vatn snertir allt í lífi okkar; vinnuna, afþreyinguna og sjálf lifibrauðið.
Fyrir rúmu ári síðan fékk Grundarfjarðarbær LIFE-styrk frá Evrópusambandinu til þess að bæta blágrænum ofanvatnslausnum í þéttbýli þar sem aðalmarkmiðið er að minnka álag úrkomu á fráveitukerfið og skila af okkur hreinna vatni til sjávar, en með breyttu loftslagi eru stórir úrkomuviðburðir að aukast í bænum. Hægt er að lesa nánar um verkefnið hér.
Dagurinn heppnaðist vel og var þátttaka góð. Húsið opnaði kl. 14:00 og strax fór straumur fólks að flæða inn. Félagasamtök og stofnanir voru með bása þar sem þau voru að kynna sig, selja varning og sýna afrakstur vinnu. Katrín Lilja Sigurðardóttir, Sprengju Kata, kom og gerði tilraunir sem gestir og gangandi fylgdust áhugasamir með.
Á dagskrá var:
Grundarfjarðarbær þakkar öllum kærlega fyrir þátttökuna, hjálpina og komuna og hlakkar til að sjá ykkur að ári.