Á mánudegi til miðvikudags í þessari viku fer fram danskennsla í öllum bekkjum grunnskólans. Danstímarnir eru í íþróttahúsinu á skólatíma nemenda en danssýning verður á miðvikudeginum kl. 15.00. Danskennari er Eva Karen Þórðardóttir
Stjórn foreldrafélagsins hefur sýnt danskennslunni mikinn áhuga og lagt skólanum lið með fjárframlagi o. fl.
Allir eru velkomnir á danssýninguna í íþróttahúsinu á miðvikudag 21. apríl kl. 15.00