Danskennsla hefur staðið yfir í grunnskólanum síðastliðnar vikur og hefur gengið mjög vel í alla staði. Síðasti danstíminn hjá nemendum verður á morgun, þriðjudaginn 24. mars en kl. 17.00 verður danssýning í íþróttahúsinu og eiga allir nemendur að mæta.

Vonumst til að sjá sem flesta foreldra og gesti.

Skólastjóri.