Laust er til umsóknar starf deildarstjóra nýrrar deildar 5 ára barna

 

 

 

Deildarstjóri óskast til starfa við nýja 5 ára deild í Grundarfirði. Deildin verður til húsa í Grunnskóla Grundarfjarðar. Um er að ræða nýtt, krefjandi og spennandi starf.

Vakin er athygli á stefnu Grunnskóla Grundarfjarðar um jafnan hlut kynja í störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð

 

Þróun 5 ára deildar í samstarfi við aðra stjórnendur.

Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.

Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs.

Mikið er lagt upp úr foreldrasamvinnu og góðum samskiptum.

Hæfniskröfur

 

Leikskólakennaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg 
Áhugi á að vinna með börnum 
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum 
Frumkvæði í starfi 
Góð íslenskukunnátta 

Frekari upplýsingar um starfið

Um er að ræða 100 % starf. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags Leikskólakennara.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Gísli Guðjónsson  skólastjóri í síma 4308550 eða með því að senda fyrirspurn í netfangið sigurdur@gfb.is

Umsóknum skal skilað eigi síðar en 10. mars nk. á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is eða sigurdur@gfb.is

Umsóknum fylgi starfsferilsskrá ásamt greinargerð þar sem fram kemur ástæða umsóknar og rökstuðningur viðkomandi fyrir hæfni í starfið.

 

Skólastjóri