Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson, 18. febrúar 2021
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson, 18. febrúar 2021

Laus er til umsóknar staða deildarstjóra við Grunnskóla Grundarfjarðar frá og með 1. ágúst 2021.

Í Grunnskóla Grundarfjarðar eru nú rúmlega 100 nemendur. Nánari upplýsingar um skólastarfið má finna á vef skólans, www.grundo.is

Stöðuhlutfall er 100% og stjórnunarumfang 30%.  

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Grunnskólakennararéttindi og reynsla af kennslu í grunnskóla
  • Reynsla af stjórnun og stjórnunarstörfum í grunnskóla æskileg
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Metnaður í starfi og áhugi á skólaþróun

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið

  • Staðgengill aðstoðarskólastjóra/skólastjóra
  • Yfirumsjón með stoðþjónustu skólans
  • Umsjón með starfsmannamálum í samráði við skólastjóra
  • Samskipti við nemendur og foreldra
  • Samskipti við Greiningarmiðstöð ríkisins, Jöfnunarsjóð og Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga

Laun eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Umsóknir berist til Sigurðar Gísla, skólastjóra, í netfangið sigurdur@gfb.is
Nánari upplýsingar um starfið er hægt að nálgast í síma 430-8550 eða sigurdur@gfb.is

Umsóknarfrestur er til 20. apríl 2021