Deiliskipulagsbreyting á Sólbakka

 

Þann 10. febrúar sl. tók gildi breyting á deiliskipulagi Háls með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. Um er að ræða óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi sem tekur aðeins til Sólbakkalóðanna sunnan megin við þjóðveginn. Bæjarstjórn samþykkti breytinguna þann 11. desember sl. 

Á lóðinni Sólbakka B er aðkomu, byggingarreitum og byggingarskilmálum breytt, og hesthús og frístundahús verða að gistihúsum. Á lóðinni Sólbakka A færast byggingarreitir til og frístundahúsi er breytt í einbýlishús. Breytingarnar fela ekki í sér aukið byggingarmagn og eru í samræmi við aðalskipulag Grundarfjarðar 2019-2039. 

Þar sem breytingin er óveruleg var fyrirhuguð breyting grenndarkynnt fyrir eigendum nálægra jarða í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ennfremur var grenndarkynningartími styttur í samræmi við 3. mgr. 44. gr. sömu laga.

Hér deiliskipulagsbreytingin.