Listahátíðin Díónýsía, sem mun standa fyrir listviðburðum í litlum bæjum úti um allt land í sumar. Hátíðin er skipulögð af listaháskólanemum en hún er opin öllum. Listviðburðurinn Díónýsía verður dagana 9 til 19 júní, á eftirfarandi stöðum:

Bolungarvík

Borgarfjörður Eystri

Djúpavík

Hafnir

Grundarfjörður

Hofsós

Siglufjörður

Stöðvarfjörður

 

Hópurinn mun vera hér í Grundarfirði í vikunni og verður með listviðburði.

Þátttakendur sem verða í Grundarfirði eru:

Gunnar Guðjónsson, Myndlistamaður

Friðrik Svanur Sigurðarson, hönnuður og myndlistarmaður

Guðmundur Hallgrímsson, hönnuður og myndlistarmaður

Erik Thomas Richard Hirt, myndlistarmaður, leikari

Katrín Inga Jónsson, myndlistarkona, leikkona, rithöfundur