Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt á fundi  5. nóvember 2015 að endurauglýsa breytingu á deiliskipulagi  samkvæmt  43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagsbreytingin felst í sameiningu lóða 4b og 6 á Nesvegi í lóð 6. Lóðarmörk lóðar 4 breytist jafnframt á móti lóð 6. Nýtingarhlutfallið breytist úr 0.90 í 0.95. Mesta leyfilega hæð mannvirkis verður 16m. Sjá nánari upplýsingar í deiliskipulagstillögu.

 

Deiliskipulagstillagan er aðgengileg hér og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Borgarbraut 16 á skrifstofutíma kl: 10-14 frá 9. desember 2015 til 21. janúar 2016 og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, hvattir til að kynna sér breytinguna og koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri, skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa Grundarfjarðar, Borgarbraut 16, 350 Grundarfjörður, í síðasta lagi 21. janúar 2016

 

Gunnar Sigurgeir Ragnarsson, Skipulags- og byggingarfulltrúi í Grundarfirði.