- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í Grundarfirði
Kosið verður til sveitarstjórna laugardaginn 16. maí 2026. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst mánudaginn 20. apríl í Grundarfirði.
Kosið er utankjörfundar á opnunartíma bæjarskrifstofu í Ráðhúsi Grundarfjarðar, Borgarbraut 16, efri hæð (gengið inn að sunnanverðu). Opið er virka daga frá 10:00-14:00. Fimmtudaginn 30. apríl verður þó ekki unnt að kjósa í Grundarfirði, en hægt að kjósa í næstu byggðarlögum.
Hægt er að kjósa á öðrum tíma samkvæmt nánara samkomulagi við kjörstjóra, Helgu Sjöfn Ólafsdóttur. (s:8697250)
Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.