Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Er lögheimili rétt skráð?

Fyrir 1. desember þurfa allir að vera með lögheimili sitt rétt skráð á þeim stað sem þeir hafa fasta búsetu. Það er mikilvægt svo öll réttindi sem fylgja lögheimili séu tryggð.  

Þau sem eiga eftir að breyta lögheimili sínu eru hvött til að ljúka því sem allra fyrst og í síðasta lagi fyrir lok nóvember.

Hvað er lögheimili?

Lögheimili er sá staður þar sem maður hefur fasta búsetu, skv. 2. gr. laga um lögheimili og aðsetur nr. 80/2018. Mjög mikilvægt er að allir séu rétt skráðir með lögheimili, því þangað renna skatttekjurnar og það er í lögheimilissveitarfélaginu sem hver og einn á rétt á þjónustu. 

Hjón eiga sama lögheimili, en hjónum er þó heimilt að skrá það hvort á sínum staðnum. Um lögheimili sambúðarfólks fer skv. 5. gr. laganna og um lögheimili barna, fer skv. 6. gr. laganna.

Hvað er föst búseta?

Föst búseta er á þeim stað þar sem maður hefur bækistöð sína, dvelst að jafnaði í tómstundum sínum, hefur heimilismuni sína og svefnstaður hans er að jafnaði. 

Þetta þýðir að lögheimili manns skal jafnan vera þar sem hann býr á hverjum tíma. 

Er hægt að hafa lögheimili í hverskyns húsnæði?

Lögheimili skal skráð í tiltekinni íbúð eða húsi, við tiltekna götu eða í dreifbýli. Húsnæðið þarf að vera skráð sem íbúðarhúsnæði í fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands (að lágmarki komið á byggingarstig 4) og þarf að hafa fengið staðfang, sbr. 2. gr. laganna um lögheimili og aðsetur frá 2018.

Ennfremur er heimilt að skrá lögheimili á stofnunum fyrir aldraða, í búsetuúrræðum fyrir fatlað fólk og skilgreindum starfsmannabústöðum. 

Í annars konar húsnæði, s.s. sumarhúsum eða atvinnuhúsnæði, er ekki heimilt að skrá lögheimili sitt. 

Hvenær og hvar skal tilkynna flutning?

Tilkynna skal flutning innan 7 daga eftir að flutt er. Flutning er hægt að tilkynna rafrænt eða með því að mæta í afgreiðslu Þjóðskrár Íslands í Reykjavík eða á Akureyri. Vinsamlegast athugið að framvísa þarf löggildum skilríkjum: vegabréfi, íslensku ökuskírteini eða nafnskírteini.  Hér er hægt að breyta lögheimili rafrænt.