- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Þjóðhátíðardagurinn í Grundarfirði
Ert þú með viðburð/tilboð eða opnun í Grundarfirði á 17. júní?
Undirbúningsvinna við 17. júní hátíðarhöldin er í fullum gangi og dagskrá að mótast með föstum liðum eins og undanfarin ár, fjallkona, hátíðarræða, söngatriði og aðrar skemmtilegar uppákomur.
Ert þú með sérstaka opnun, tilboð. viðburð eða annað í huga fyrir 17. júní sem ætti heima í hátíðardagskránni?
Þá biðjum við þig um að hafa samband við Pálma á netfangið palmi@grundarfjordur.is með nánari upplýsingum fyrir þriðjudaginn 9. júní.
Formleg dagskrá verður birt síðar.