Startup Tourism er nýr viðskiptahraðall (e. Business accelerator) á vegum Klak Innovit sem miðar að því að bæta faglega undirstöðu hjá nýjum fyrirtækjum í ferðaþjónustu auk þess að stuðla að dreifingu ferðamanna um landið allt árið um kring. Vinnusmiðja í Startup Tourism verður haldin í Hugheimum, Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi þann 10. desember næstkomandi og stendur frá kl. 10:00 til 18:00.

Í vinnusmiðjunum verður farið yfir helstu þætti við mótun viðskiptahugmynda, gagnleg tól og tæki við stofnun fyrirtækja, mikilvægi hönnunar við þróun viðskiptahugmynda og lykilatriði við sölu og markaðssetningu á sviði ferðaþjónustu. Gert er ráð fyrir því að þátttakendur nýti tímann einnig til að vinna að hugmyndum sínum.

Þátttaka í vinnusmiðjunum er ókeypis en þó er nauðsynlegt að skrá sig á vefsíðu Startup Tourism, startuptourism.is. Einnig er hlekkur á viðburðinn á Facebook: https://www.facebook.com/events/902077373217514/.

 

Klak Innovit hefur í samstarfi við Íslandsbanka, Isavia, Vodafone og Bláa lónið ásamt Íslenska ferðaklasanum komið á fót nýjum viðskiptahraðli með sérstaka áherslu á ferðaþjónustu. Allt að tíu fyrirtæki verða valin til þátttöku í hraðalinn sem hefst 1. febrúar 2016. Í tíu vikur fá forsvarsmenn fyrirtækjanna þjálfun, fræðslu, ráðgjöf og leiðsögn frá hinum ýsmu sérfræðingum, fjárfestum og reyndum frumkvöðlum við að þróa viðskiptahugmyndir sínar áfram.

Markmið Startup Tourism verkefnisins er að efla frumkvöðlastarf innan greinarinnar og ýta undir atvinnu- og verðmætasköpun á Íslandi. Verkefninu er ætlað að stuðla að faglegri undirstöðu hjá nýjum fyrirtækjum í ferðaþjónustu og stuðla að dreifingu ferðamanna í kringum landið, allt árið um kring.  Verkefninu er ekki síður ætlað að miðla þeirri þekkingu sem orðið hefur til á undanförnum árum og áratugum og efna til umræðu um helstu áskoranir og tækifæri innan greinarinnar.