Menningarminjadagur Evrópu verður haldinn sunnudaginn 6. september n.k.

Fjölbreytt dagskrá er á menningarminjadeginum í ár. Þema dagsins að þessu sinni er torfhús í fortíð og nútíð.

Klukkan 14:00 mun Magnús A. Sigurðsson minjavörður Fornleifaverndar ríkisins á Vesturlandi vera með vettvangsferð þar sem hann kynnir fornar tóftir bæjarins Öndverðarness í Snæfellsnesþjóðgarði.  Tilgangur menningarminjadagsins er að vekja athygli almennings á gildi menningararfsins og skapa vettvang til þess að almenningur geti kynnst sögulegu umhverfi sínu. Dagskrá menningarminjadagsins má finna í heild á heimasíðu Fornleifaverndar ríkisins, www.fornleifavernd.is