Eyþór Björnsson hætti störfum á bæjarskrifstofu Grundarfjarðar 1. apríl sl. Hann hóf störf sem skrifstofustjóri árið 1998 og gegndi störfum sveitarstjóra/bæjarstjóra frá sept. 2001 til  sept. 2002 og svo aftur frá júní 2003.

Eyþóri eru þökkuð vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins og ánægjulegt samstarf. Honum er óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi.