MATARMARKAÐUR kemur heim í hérað!

Í samstarfi við matarframleiðendur á Vesturlandi verður haldin farandmatarmarkaður helgina 13. og 14. nóvember 2021 í stað hefðbundins matarmarkaðs.

Farið verður með bílalest hlaðna varningi vestlenskra framleiðenda um landshlutann og þannig farið með markaðinn heim í hérað til fólksins, í stað hópamyndunar á einum stað.

 

Ferðatilhögun verður sem hér segir 

Laugardagurinn 13. nóvember

  • 10:00-10:30 Hellissandur
  • 11:00-12:00 Ólafsvík 
  • 13:00-14:00 Grundarfjörður planið við Sögumiðstöðina
  • 15:00-16:00 Stykkishólmur 
  • 17:00-18:00 Breiðablik

Sunnudagur 14. nóvember 

  • 10:00-11:00 Búðardalur
  • 12:30-13:30 Hvanneyri
  • 14:00-15:00 Borgarnes
  • 15:30-16:00 Laxárbakki
  • 16:30-18:00 Akranes

Nánari upplýsingar um farandmarkaðinn og framleiðendur má sjá hér