Enn eitt farþegaskipið lagðist að bryggju hér í Grundarfirði í morgun. Að þessu sinni er það Bremen sem er í ferð um Norður Atlantshaf frá Þýskalandi með viðkomu í Danmörku, Skotlandi (Orkneyjum og Hjaltlandi), Færeyjum og svo lýkur ferðinni hér á Íslandi.

Bremen við bryggju í Grundarfirði

Bremen er lítið af farþegaskipi að vera, um 6.750 tonn að stærð. Hins vegar er það  mjög víðförult eins og sjá má á þessari vefsíðu. (Velja skip í hægri dálk).

Bremen  heldur úr höfn síðdegis í dag áleiðis til Reykjavíkur.