Mynd: Olga Sædís Einarsdóttir
Mynd: Olga Sædís Einarsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Vegna stöðu liðinnar viku og smita í samfélaginu hefur verið tekið ákvörðun um að gera hlé á félagsstarfi þessa vikuna.

Bókasafnið verður opið, þó eru allir beðnir um að fara varlega og muna þríflokkinn:

  • Gríma
  • Spritta
  • Handþvottur

Þessa vikuna fellur niður Molakaffi á miðvikudegi, handavinnuhópurinn hefur ákveðið að fresta sínum hittingi þessa vikuna og Grundarfjarðarbær mælist til þess að félagasamtök hugi að sínu fólki og taki stöðuna.

Sjöa vikunnar verður áfram á sínum stað og hvetjum við ykkur endilega til þess að skoða nýju myndirnar.

Tökum eina viku í einu, einn dag í senn. Njótum aðventunnar, heima, förum í labbitúra og skoðum jólaljósin sem prýða bæinn.