- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga leitar að fólki í stuðningsþjónustu fyrir fólk með fötlun
Stuðningsfjölskylda
Óskað er eftir fólki sem er tilbúið til að gerast stuðningsfjölskylda. Hlutverkið felst í að annast og styðja barn með fötlun inn á heimili stuðningsfjölskyldu eina helgi í mánuði.
Liðveisla
Óskað er eftir fólki sem er tilbúið til að sinna liðveislu. Markmið liðveislu er að hjálpa notendum að öðlast þau lífsgæði sem þykja eðlileg í samfélaginu, meðal annars með því að taka þátt í tómstundastarfi sem stuðlar að aukinni félagslegri þátttöku. Auk þess að stuðla að upplifun sem styrkja persónulegan þroska.
Við leitum að einstaklingum, 18 ára og eldri.
Fagleg vinnubrögð, virðing fyrir sérstöðu notenda og samstarf við aðstandendur.
Umsóknir og fyrirspurnir skulu berast á netfangið fssf@fssf.is