UMFG gallinn að framan.

Nú er búið að panta um 120 félagsgalla hjá UMFG. Við viljum minna á að hægt er að panta galla hjá Eygló í síma 863-0185 eða koma við á Eyrarvegi 14. Barnastærðir ( 86- 152) kosta 5400 og fullorðinsstærðir (164 og stærra) eru á 6400.

UMFG gallinn að aftan.

Við viljum einnig minna á að félagið fer fram á það að allir sem mæta til keppni fyrir UMFG verði í nýja félagsgallanum.