- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Eden keppir á Samfés
Þann 5.mars var SamVest haldið í íþróttamiðstöðinni í Stykkishólmi og fór þar fram undankeppni fyrir söngkeppni Samfés.
Félagsmiðstöðin Eden í Grundarfirði sendi einn keppanda, Kristu Rún Þrastardóttir úr 10. Bekk og söng hún lagið Takk fyrir allt sem er frumsamið lag eftir hana. Það var hann Einir Hugi Guðbrandsson sem sá um allt undirspil. Krista Rún varð í öðru sæti í undankeppninni og öðlast með því þáttökurétt í Söngvakeppni Samfés í maí nk.
Sigurvegari undankeppninnar var Kristbjörg Ragney Eiríksdóttir sem söng lagið Clockwork eftir Laufey. Kristbjörg kemur frá félagsmiðstöðinni Óðal í Borgarnesi.
Krista Rún og Kristbjörg Ragney munu því taka þátt í söngvakeppni Samfés 9. maí fyrir hönd Vesturlands.