Ný heimasíða Ferðafélags Snæfellsness var tekin í gagnið fyrir nokkrum dögum. Að sögn Gunnars Njálssonar formanns félagsins, er tilkoma heimasíðu, mikið hjálpartæki til að koma upplýsingum á framfæri, ásamt undirbúning á gönguferðum og öðrum viðburðum. Þar verður einnig að finna ýmsan fróðleik, hægt að lesa um gönguleiðir og skoða myndir, ásamt ferðaáætlun hvers árs. Á næstu dögum bætist margt fróðlegt inn á síðuna.

Slóðin er www.ffsn.is