Fundarmenn við undirbúning fjallskila, frá vinstri, Vignir Smári Maríasson varaformaður skipulags- o…
Fundarmenn við undirbúning fjallskila, frá vinstri, Vignir Smári Maríasson varaformaður skipulags- og umhverfisnefndar, Kjartan Jósefsson bóndi í Nýjubúð og Ólafur Jónsson bóndi á Mýrum.

Þriðjudaginn 31. ágúst voru lögð á fjallskil í Eyrarsveit. Fyrri leitir munu fara fram laugardaginn 18. september nk. og verður réttað samdægurs á Mýrum og í Hrafnkelsstaðarétt.

Fjallskil fela í sér skyldu fjáreiganda (bónda) til að skila ákveðnum fjölda dagsverka við fjárleitir. Öllum þeim sem hafa búfé undir höndum sem fjallskilaskylt er, ber að taka þátt í göngum og hreinsun heimalanda samkvæmt lögum um afréttarmálefni, fjallskil o.fl. nr. 6/1986, og eftir því sem sveitarstjórn á hverjum stað ákveður.

Það er skipulags- og umhverfisnefnd sem hefur fjallskil með höndum í Grundarfjarðarbæ og nýtur liðsinnis bænda í sveitinni.