Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Fimmtudaginn 24. ágúst sl. voru lögð á fjallskil í Eyrarsveit. 

ATH BREYTTUR TÍMI - Göngur og réttir frestast til sunnudagsins 17. september v/ veðurs. 

Fyrri leitir munu fara fram laugardaginn 16. september nk. og verður réttað samdægurs á Mýrum og í Hrafnkelsstaðarétt.

Seinni leitir munu svo fara fram laugardaginn 30. september.

Vinsamlega athugið, ef veður leikur illa við þá gæti leitum verið frestað en það yrði þá auglýst nánar hér á heimasíðu Grundarfjarðarbæjar.

Fjallskil fela í sér skyldu fjáreigenda til að skila ákveðnum fjölda dagsverka við fjárleitir. Öllum þeim sem hafa búfé undir höndum sem fjallskilaskylt er, ber að taka þátt í göngum og hreinsun heimalanda, samkvæmt lögum um afréttarmálefni, fjallskil o.fl. nr. 6/1986, og eftir því sem sveitarstjórn á hverjum stað ákveður.

Fjallskilaseðill hefur verið sendur á alla þá sem fjallskilaskyldir eru. 

Skipulags- og umhverfisnefnd fer með málefni fjallskila í Grundarfjarðarbæ og nýtur það traust liðsinnis bænda í sveitinni.

Fjallskilakveðjur