Fjárhagsáætlun Grundarfjarðarbæjar fyrir árið 2006 var samþykkt við aðra umræðu á fundi bæjarstjórnar miðvikudaginn 14. desember. Ennfremur fór fram fyrri umræða um þriggja ára áætlun bæjarins.

Gerð verður nánari grein fyrir fjárhagsáætluninni og ýmsu henni tengdu hér á bæjarvefnum á næstu dögum.

 

Helstu fjárfestingar ársins 2006

Í fjárhagsáætlun næsta árs er gert ráð fyrir kostnaði við stækkun leikskólans, sem hófst í haust, endurbótum lóðar og húsbúnaði  og er það stærsti staki liðurinn í fjárfestingum ársins. Hjá hafnarsjóði stendur fyrir dyrum gerð nýrrar litlu bryggju.

Komið verður upp aðstöðu til smíða- og verkgreinakennslu í grunnskóla fyrir haustið 2006, einnig er fjármunum veitt til að koma upp fartölvuveri að ósk grunnskólans. Fjármunir eru lagðir í vinnu við skipulagsmál og í þarfagreiningu, undirbúning og hönnun sundlaugar.  

Einnig er fyrirhugað að leggja slitlag og vinna ýmsar umhverfisbætur í tengslum við væntanlega hitaveitu, en þar er reyndar ekki unnt að tímasetja framkvæmdir enn sem komið er.

 

Áætlunin verður birt á vefnum innan tíðar, eins og fyrr segir.