Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Grundarfjarðarbæjar  fyrir árið 2010. Auglýst er eftir erindum, umsóknum, tillögum og ábendingum íbúa, félagasamtaka og fyrirtækja um mál sem varða gerð fjárhagsáætlunar.

Þeir aðilar sem vilja koma með erindi, umsóknir, tillögur og/eða ábendingar er varða næsta fjárhagsár Grundarfjarðarbæjar eru hvattir til að skila þeim á bæjarskrifstofuna til skrifstofustjóra fyrir 16. október 2009.


skrifstofustjóri