Fjárhagsáætlun 2021 - umsóknir um styrki

Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Grundarfjarðarbæjar fyrir árið 2021. Auglýst er eftir styrkumsóknum frá einstaklingum og/eða félagasamtökum. Hefur þú eða félagasamtök á þínum vegum hug á að senda inn styrkumsókn fyrir árið 2021?

 Sendu þá umsókn á netfangið:

grundarfjordur@grundarfjordur.is

 

Taktu fram fjárhæð þess styrks sem óskað er eftir og láttu fylgja stutta greinargerð.

 Umsóknarfrestur er til og með 26. október 2020.