Nú stendur yfir vinna við aðgerðaáætlun Áfangastaðaáætlunnar Vesturlands 2021 - 2023. 

Af því tilefni verður rafræn netkynning á verkefninu þar sem Áfangastaðaáætlun Vesturlands er kynnt. Kynningin verður milli 16:30 – 17:30 á síðu SSV á Facebook.  Sagt verður frá þeim verkefnum sem unnið hefur verið að síðastliðin ár samkvæmt aðgerðaráætlun Áfangastaðaáætlunar Vesturlands 2018 -2020.

Í kjölfar fjarkynningarinnar verður opnað fyrir leiðbeinandi kosningu þar sem íbúar geta gefið leiðbeinandi álit á forgangsröðun verkefna varðandi uppbyggingu innviða á sínu svæði innan Vesturlands. Með þessu móti geta íbúar Vesturlands tekið virkan þátt í að móta verkefnaáætlun næstu þriggja ára.  Hægt verður að nálgast þá kosingu á vef SSV að lokinni fjarkynningunni og nánari upplýsingar um það munu koma fram í fjarkynningunni.

Hér er hægt að nálgast viðburðinn á Facebook