FJÖLBRAUTASKÓLI SNÆFELLINGA
Skólaakstur
ÚTBOÐ


Fjölbrautaskóli Snæfellinga óskar eftir tilboðum í skólaakstur fyrir nemendur skólans veturinn 2021-2022. Gert er ráð fyrir eins árs samningi með möguleika á framlengingu um eitt ár. Til verksins heyrir útvegun hópbifreiða og fjármögnun þeirra ásamt viðhaldi og rekstri.
Útboðið skiptist í tvo innkaupahluta, þ.e. akstur frá Stykkishólmi til Grundarfjarðar og akstur frá Hellissandi til Grundarfjarðar, og er bjóðendum bæði heimilt að bjóða í báða innkaupahluta eða annan hvorn þeirra.

Útboðsgögn eru aðgengileg frá og með þriðjudeginum 14. september 2021 á vefslóðinni vso.ajoursystem.is.
Tilboðum skal skila rafrænt gegnum útboðskerfið vso.ajoursystem.is, eigi síðar en föstudaginn 24. september 2021, kl. 14:00.