Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir fjármálastjóra í 50% stöðu til afleysingar frá 01.08.2013 - 01.02.2014.

Laun greiðast samkvæmt stofnanasamningi skólans.

Fjármálastjóri annast allar fjárreiður skólans. Í því er meðal annars fólgið að færa bókhald, gera fjárhags- og rekstraráætlanir, afstemmingar og fleira.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg
  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Þekking af bókhaldi æskileg
  • Skipulögð/lagður
  • Góð tölvukunnátta
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.

Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2013. Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist Jóni Eggerti Bragasyni skólameistara á netfangið joneggert@fsn.is Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti:

Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði

Umsóknarfrestur er til 30. maí 2013.