Námsgreinar   Stöðuhlutfall

 

Danska             50%  

Efnafræði         50%

Enska               75%    afleysing í eitt ár

Íslenska          100%  afleysing í eitt ár

Líffræði             50%

Spænska           50%    afleysing í eitt ár

 

Laun greiðast samkvæmt stofnanasamningi skólans.

 

Skólinn er framhaldsskóli með áfangasniði þar sem í boði eru stúdentsbrautir, almenn námsbraut og starfsbraut. Skólinn er með framhaldsskóladeild á Patreksfirði. Helstu áherslupunktar í kennsluháttum skólans eru  nýting upplýsingatækni í skólastarfi, fjölbreyttar verkefnamiðaðar kennsluaðferðir og námsmat með sérstakri áherslu á leiðsagnarmat.

 

Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í fagi og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Leitað er að kennurum sem hafa frumkvæði, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og hafa áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi og uppbyggingu náms í samræmi við ný lög um framhaldsskóla (nr. 92/2008).

Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2013.

Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist Jóni Eggerti Bragasyni skólameistara á netfangið joneggert@fsn.is.Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði.

Umsóknarfrestur er til 7.maí 2013.

Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir skólameistari á netfanginu joneggert@fsn.is eða í síma  8917384. Á vef skólans www.fsn.is má einnig finna ýmsar upplýsingar um skólann.

Skólameistari