Foreldrafundur verður haldinn í Fjölbrautaskóla Snæfellinga þriðjudaginn 3. september kl. 20:00 – 21:30.

Fundurinn er haldinn í húsnæði Fjölbrautaskólans og verður sendur í fjarfundi til framhaldssdeildar á Patreksfirði.

Dagskrá:

·         Almennt um FSN

·         Kynning á nýjum áfanga fyrir nýnema FFÉ107                                                

·         Kennsluhættir-Námsmat           

·         Kynning á foreldrafélagi             

·         Kynning á stoðþjónustu

·         Umsjónarkennarar nýnema

 

Við hvetjum foreldra til þess að koma á fundinn og fræðast um skólastarfið, ræða námið og velferð nemenda.  Við teljum mikilvægt að samstarf foreldra og skóla sé gott og öflugt.  Rannsóknir og reynslan sýna að virkt samstarf foreldra og skóla stuðlar að jákvæðum áhrifum á skólastarfi, auðveldar foreldrum að styðja við börn sín og dregur úr hættu á brottfalli úr skóla.   Allir foreldrar/forráðamenn eru velkomnir en foreldrar nýnema eru sérstaklega hvattir til að koma á fundinn.

 

Skólameistari

Jón Eggert Bragason