Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, mun heimsækja Grundarfjörð sunnudaginn 8. júní. Tilefnið er afhending viðurkenningar vegna Green Globe vottunar sveitarfélaganna á Snæfellsnesi. Athöfnin fer fram í Fjölbrautaskóla Snæfellinga og hefst klukkan 14:30.

Grundfirðingar eru hvattir til að taka hátíðlega á móti forsetanum með því að draga íslenska fánann að húni.